Sinopsis
Podcast by Hefnendurnir
Episodios
-
Hefnendurnir 37 - Tinder á Coruscant
10/11/2014 Duración: 01h10minGrímsævintýrið og Dagshugleiðingin taka snúning á aldraðri frænku Péturs Parker, kíkja á kynverund Hulks, reipsjeima Dr. Fuckstable og bera saman ímyndaðar fasteignir í þessum tímabærasta Hefnendaþætti ever.
-
Hefnendurnir 36 - Topp 20 mikilvægustu kvikmyndir í sögu tímans ever punktur bannað að breyta.
03/11/2014 Duración: 01h19minBúið að loka kjörstöðum og setja gaddavír og jarðsprengjur og stóra hunda og menn með byssur og múrvegg og risaeðlur með þrjá hausa sem spyrja gátur eða rífa þig í sig og risastór kolkrabbi sem borðar skip og guði og þetta er sko ekki tungl...
-
Hefnendurnir 35 - Marvelaði
27/10/2014 Duración: 44minHefnendur missa nokkra lítra af munnvatni yfir nýrri áætlun Marvel risans, 35 ára afmæli Alien og popptónlist tileinkaðri g-unum þremur.
-
Hefnendurnir 34 - Ástin og óttinn
20/10/2014 Duración: 01h13minHulkleikur örvæntir á meðan Ævorman talar um skilnað ostamannsins, en síðan horfast hetjurnar okkar í augu við hrylling í sínum margvíslegu myndum og rifja upp nokkur af þeim atriðum sem þeim hrýs við hugur í tilefni hrekkjavöku.
-
Hefnendurnir 33 - Trúðaofstæki
13/10/2014 Duración: 01h22minHetjurnar okkar tvímenna drangana og kvengera draugabana ásamt því að ferðast í framtíðina með Súpermann og félögum áður en þeir ráðast gegn erkióvinum sínum, hinum hvítmáluðu og martraðavekjandi trúðum.
-
Hefnendurnir 32 - The Saga
06/10/2014 Duración: 01h57minÍ fjarveru Ævormanns fær Hulkeikur Sögu Garðars í þáttinn og þau horfa saman á Star Wars. Alla myndina. Frá upphafi til enda. In real time. That's right. Þessi þáttur er eitt stór Star Wars commentary. May the force be with you. (Taka skal fram að við erum að horfa á gömlu orginal theatrical release útgáfuna.)
-
Hefnendurnir 31 - Digital Hitler
29/09/2014 Duración: 01h18minÍ sínum þrítugasta og fyrsta þætti ræða hetjurnar okkar um krossaða sadista, miljón orð frá Alan Moore og feikaða pardusinn hans Steve Martin áður en þeir rýna í gagnrýni og spá í hugumstór hjörtu Skota.
-
Hefnendurnir 30 - State of the Union
22/09/2014 Duración: 01h49minHulkleikur snýr aftur í faðm Ævormans og saman halda þeir uppá þrítugsafmælið með nýju Hefnendastefi og heiftarlegu hugarangri um Doktorinn, Stallone og endinn á Contact. Allt fyrir Jarðarbúa.
-
Hefnendurnir 29 - Pilotpælingar
15/09/2014 Duración: 01h10minÁ meðan Hulkleikur heimsækir Finnland lítur Ragnar Rawkeye Hansson aftur í heimsókn til Ævormans og þeir hugleiða finnska fyndni, segja nektarsögur af sjálfum sér og fara á flug um pilot þætti.
-
Hefnendurnir 28 - Leikur Köngulóarkonunnar
08/09/2014 Duración: 01h13minÁ meðan Hulkleikur spókar sig í borg englanna fær Ævorman gestahefnandann Rawkeye í heimsókn til að ræða við sig um klúrar kápur, steðjaverksmiðju og ferskan doktor áður en þeir kafa ofaní kvenhetjur í tölvuleikjum.
-
Hefnendurnir 27 - De Palmasunnudagur
01/09/2014 Duración: 01h32minAð þessu sinni pizza Hefnendur sig upp áður en Ævorman skreppur frá og Hulkleikur fær í heimsókn kvikmyndafræðinginn og De Palma ástríðumanninn Ara Gunnar Þorsteinsson sem færir alla góða jarðarbúa í sannleikann um það hvers vegna dýrka eigi Brian, meistara myndmálsins.
-
Hefnendurnir 26 - Bless Boy Wonder
25/08/2014 Duración: 01h05minÍ sínum tuttugusta og sjötta þætti hallmæla Hefnendurnir meintum leðurblökuskapara og minningargreina tvær dívur hvíta tjaldsins áður en þeir rifja upp góðu stundirnar með hefnendaheimilisvininum Robin Williams.
-
Hefnendurnir 25 - Glerdýraborgin
18/08/2014 Duración: 01h23minHefnendurnir smella í sig steinastaupum, ræða flóttamenn úr æskuparadís og rifja upp minnistæðar bíófarir áður en þeir taka á móti dröfningunni DD Rozas sem leiðir þá í allan sannleikann um það sem gerist bakvið tjöldin í draumaborginni L.A.
-
Hefnendurnir 24 - Anna í Sveittuhlíð
11/08/2014 Duración: 01h03minHefnendurnar ræða manngerðar endur, takmarkaða múltíversa og rostungahorror áður en þeir fara í bíó með Önnu Svövu Knútsdóttur. Inniheldur mjög minor spoilera um Guardians of the Galaxy.
-
Hefnendurnir 23 - Með sand í egóinu
04/08/2014 Duración: 01h43minHetjurnar hugumprúðu eygja alklæðnað Amazóngyðju, sækja syndaborgina svarthvítu heim, mæna á minnkaðan mauratamningamann og halda hamingjusamir niður Heiftarveginn, er þeir verja heilum þætti í að gera upp nýafstaðna nördaveislu mega-myndasöguráðstefnunnar í San Diego.
-
Hefnendurnir 22 - Úr Leðurblökuskápnum
28/07/2014 Duración: 01h57minHeilagar Halakörtur Jarðarbúar! Haldiði ekki að Hefnendurnir hafi hent í heljarstóran hátíðarþátt um Leðurblökumanninn sjálfan. Dýnamíska dúóið okkar heldur upp á 75 ára afmæli hempuklædda krossfarans með löngu og íburðarmiklu spjalli um Batman. Tíu Bill Finger upp til guðs!
-
Hefnendurnir 21 - Litla Líkkistan
21/07/2014 Duración: 52minÆvör og Hulda hella uppá jurtate og ræða kynskipti ofurhetja, kynþáttaskipti ofurhetja og afstæði apavæmninnar. Örvar Eusébio lýsir úrslitaleik Hefnendadeildarinnar og limir fljúga.
-
Hefnendurnir 20 - Mirönduheilkennið
14/07/2014 Duración: 02h02minJárnmennið og Grænmetið ákveða bragðbestu brúðuna, kvikindislegustu kvikmyndina og öndverðustu ofurkonuna, auk þess sem þeir fá fróma og fantasíska fótboltafræðslu frá Örvari Eusebio í þessum tvöfalda og tuttugasta tímamótaþætti Hefnenda.
-
Hefnendurnir 19 - Gulrótarblekkingin
07/07/2014 Duración: 01h13minHefnendur ræða um keppnisskap, kaiju-konur og karþasis í ofbeldisóperum áður en Ævor Man kemur með fagrar fabúleringar um Franquin sem Hulkleikur þurfti endilega að breyta í íhugun um Andrésar erótík. Við biðjumst velvirðingar á suðinu í þessari upptöku. Það er Doctor Doom að kenna.
-
Hefnendurnir 18 - Vampýr Áskell vs. Zombie Brown
30/06/2014 Duración: 01h14minFullhugarnir fílelfdu fagna aldarfjórðungs afmæli Burton blökunnar, agnúast um ódauða uppvakninga og reyna rauðeygðir að réttlæta og verja væskilslegu vinnuna sína.